_SOS9045_xlarge.jpg

NÁNAR UM OKKUR

 
 

Hæfi er staðsett í sérhönnuðu nýju húsnæði í Egilshöll. Í allri hönnun var lögð áhersla á að skapa hlýlegt og þægilegt umhverfi þar sem bæði starfsfólki og þeim sem sækja þjónustuna getur liðið vel. Um er að ræða rúmlega 500 fm húsnæði þar sem fyrirmyndar aðstaða er til staðar fyrir starfsemi lækna, sjúkraþjálfara, sálfræðinga, félagsráðgjafa og fleiri fagaðila.

Við erum auk þess með samkomulag við World Class í Egilshöll um aðgengi að tækja – og þjálfunarsal þeirra, getum nýtt okkur eina stærstu innigöngubraut á landinu og höfum möguleika á nýtingu annarra æfingasala hér í Egilshöll eins og þörf er.

Merki / logo Hæfi samanstendur af þremur hringjum sem tákna mismunandi tengingu við þjónustuna og lýsir áherslum okkar í þverfaglegri nálgun: líkamleg, sálfræðileg og félagsleg (bio-psycho-social). Í miðju hringanna má sjá manneskju sem er tilvitnun í sameiginlegan þátt þessara þriggja hringja-heilsu. Græni liturinn stendur fyrir vöxt, samræmi, heilsu og öryggi. Hönnuður merkis er Elsa Nielsen.

Hjá Hæfi starfar reynslumikið fagfólk á sviði endurhæfingar og heilbrigðisþjónustu. Við leggjum áherslu á einstaklingsmiðaða nálgun auk þverfaglegrar samvinnu með það að markmiði að hámarka gæði og árangur þjónustunnar einstaklingnum í hag. Einnig er hægt að skrá sig í opna hópa og á námskeið sem auglýst eru hér á síðunni.